02.05.2011 08:58
14. MAÍ - BÆNA OG LOFGJÖRÐARDAGUR
23.02.2011 23:43
40 DAGA FASTA & BÆN
23.02.2011 23:32
BÆNALISTI - 40 DAGA
Við köllum allt kristið fólk til að fasta og biðja, fyrir kirkjunni á Íslandi og landinu okkar.
Bæn fyrir kirkjunni
1. VAKNA (S) -
Biðjum Guð að vekja kirkju sína á Íslandi að Guð mætti taka okkur úr
doðanum og mókinu í að sjá hvað raunverulega skiptir máli. Bara Hann skiptir
máli og ekkert annað. Við viljum lifa róttækari og helgaðra lífi.
Opinb. 3:2 Vakna þú og styrk
það sem eftir er og að dauða komið.
2. AFTURHVARF - IÐRUN (L)
Við leggjum til hliðar allar málamiðlanir og rangindi og hverfum aftur
til Drottins. Biðjum Drottinn um að kirkja Guðs á Íslandi mætti auðmýkja sig í
Föstu og bæn. Samkvæmt Jóel kafla 2.
Jóel 2:12.15-16. En
snúið yður nú til mín - segir Drottinn - af öllu hjarta, með föstum, gráti og
kveini. 15Þeytið
lúðurinn í Síon, stofnið til helgar föstu, boðið hátíðarstefnu. 16Kveðið saman lýðinn,
helgið söfnuðinn, stefnið saman gamalmennum, safnið saman börnum og
brjóstmylkingum. Brúðguminn gangi
út úr herbergi sínu og brúðurin út úr brúðarsal sínum.
3. OPINBERUN -
Við viljum opinberun á hver Guð er inn í kirkjuna. Að Guð mætti opinbera hjarta sitt,
leyndardóma sína og hvernig Hann
starfar. Opinberun um
helgun, föstu, bæn og að Hann mun koma aftur í skýjum himinsins.
Bréf Páls til Efesusmanna 1:18 Ég bið hann að upplýsa sálarsjón yðar,
svo að þér skiljið, hver sú von er, sem hann hefur kallað oss til, hver
ríkdómur hans dýrlegu arfleifðar er, sem hann ætlar oss meðal hinna heilögu,
4. REISA UPP BÆN -
Biðjum Guð að reisa upp bænaher á Íslandi, fólk sem er til í að leggja
allt í sölurnar, til að sitja við fætur Drottins, lýta auglit Hans og þekkja
hjarta Hans.
Sálmur 2:8
Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.
5. TRÚA FYRIRHEITUNUM (S)
Við veljum að trúa fyrirheitum Drottins fyrir þessu landi, fyrir
kirkjuna og þau spádómsorð sem hafa komið og hafa verið staðfest, við vitum að
þau munu rætast á sínum tíma. En við biðjum Guð mætti þetta vera dagurinn mætti
þetta vera tíminn. Reistu upp
kirkju þína.
Jeremía 33:14 Sjá, þeir dagar munu
koma _ segir Drottinn _ að ég mun láta rætast fyrirheit það, er
ég hefi gefið um Ísraels hús og Júda hús.
Lúkas 1: 45 Sæl er hún, sem trúði því, að rætast mundi það,
sem sagt var við hana frá Drottni."
6.
NÝTT UPPHAF -
ANNAÐ TÆKIFÆRI
Fólk sem hefur þekkt Guð, en yfirgefið
Hann og þá köllun sem hvílir yfir lífum þeirra. Við köllum þau inn! Nýtt upphaf
er í boði og annað tækifæri. (Endilega nefnið þið nöfn þeirra sem þið
þekkið). Í dag er tími
endurreisnar í húsi Guðs.
Jesaja 11:11 Á þeim degi mun Drottinn útrétta hönd sína í
annað sinn til þess að endurkaupa þær leifar fólks síns, sem eftir eru í
Assýríu, Norður-Egyptalandi, Suður-Egyptalandi, Blálandi, Elam, Babýloníu,
Hamat og á eyjum hafsins.
7. FIMMFALDA ÞJÓNUSTAN RÍSI UPP -
POSTULAR -
SPÁMENN - TRÚBOÐAR -HIRÐAR - KENNARAR
Biðja
Guð um að reisa upp menn og konur sem hafa smurningu POSTULA / SPÁMANNA
/TRÚBOÐA / KENNARA / HIRÐAR. AÐ
kirkja Guðs á Íslandi mætti hafa allar þessar þjónustur starfandi. Biðjum um lítilæti, auðmýkt og einingu
svo þetta mætti verða.
Efesus 4: 11 Og
frá honum er sú gjöf komin, að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir
trúboðar, sumir hirðar og kennarar.
Samkvæmt Efesus 6:10-18
Við viljum vera kirkja sem stenst vélabrögð djöfulsins. Biðjum Guð að
íklæða kirkjuna herklæðum Hans.
Svo við tekið vald yfir kringumstæðum í samfélaginu hverju sinni.
8.
BIBLÍAN -
Biðjum Guð að gefa hungur og ástríðu eftir
Orði sínu í líkama Krists á Íslandi. Biðjum Guð um að gefa okkur góða þýðinga á Biblíunni án
Apókrýfubókanna.
Bréfið til Hebrea 4:12 Því að orð Guðs er lifandi
og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni
sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar
hjartans.
Jóhannes 10:35 _ og ritningin verður ekki felld úr
gildi, _
Bæn fyrir Íslandi
1. Syndajátning - iðrun
Við viljum játa syndir Íslands og hvernig við sem íslendingar höfum vikið
frá Drottni. Biðjum Guð um sanna iðrun
í íslensku þjóðina.
Esra
9:6 og sagði: "Guð minn, ég fyrirverð
mig og blygðast mín að hefja auglit mitt til þín, ó minn Guð! Því að misgjörðir
vorar eru vaxnar oss yfir höfuð og sekt vor orðin svo mikil, að hún nær til
himins.
2. AFTURHVARF - SNÚA VIÐ HÖGUM OKKAR
Við játum það út að við sem þjóð viljum hverfa aftur til Guðs og að Hann
mætti snúa okkur til sín og snúa við högum okkar.
Sakaría
1:3 Seg því við þá: Svo segir Drottinn
allsherjar: Snúið yður til mín _ segir Drottinn allsherjar _ þá mun ég snúa mér
til yðar _ segir Drottinn allsherjar.
3. UNGA FÓLKIÐ -
Biðjum Guð um að úthella Anda sínum yfir unga
fólk þessa lands. Biðjum um ótta fyrir Guði og heilagleika Hans í ungu
kynslóðina.
Jóel 3:1 En síðar meir mun ég úthella anda mínum yfir allt
hold. Synir yðar og dætur yðar munu spá, gamalmenni yðar
mun drauma dreyma, ungmenni yðar munu sjá sjónir.
4.
Kristin þjóð -
Við játum það út að við erum Guðslýður (
íslendingar) við tilheyrum Honum og lútum Honum einum.
Sálmur
33:12 Sæl er sú þjóð
er á Drottin að Guði, sá lýður er hann hefir kjörið sér til eignar.
5.
FÓSTURDEYÐINGAR -
Biðjum Guð að enda fóstureyðingar, að Guð snerti
við mæðrum, feðrum, læknum,
hjúkrunafræðingur, félagsráðgjöfum, stjórnmálamönnum og fjölmiðlum til að sjá
sannleikan. Við biðjum um umskifti í samfélaginu.
Sálmur
139: 13 - 16 Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið
mig í móðurlífi. Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður,
undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel. Beinin í mér voru þér eigi
hulin, þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar. Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað
efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra
var til orðinn.
6.
STJÓRNMÁL-
Biðjum
Guð um guðlega stjórnmálamenn. Menn og konur sem standa fyrir það sem Guðs er
og hvika hvorki til hægri né vinstri frá sannleikanum.
Orðskviðirnir 21:1
Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins, Hann beygir það til
hvers, er Honum þóknast.
Sálmur 119:3 Og tak aldrei sannleikans orð
burt úr munni mínum, því að ég bíð dóma þinna.
7.
HJÓNABÖND
-
Biðjum
Guð um að trúnaðurinn snú aftur í hjónabönd á Íslandi. Um sáttargjörð þar sem
ósætti er, endurreisn og ást.
Malakí 2:16 Því
að ég hata hjónaskilnað _ segir Drottinn, Ísraels Guð, _ og þann sem
hylur klæði sín glæpum _ segir Drottinn allsherjar. Gætið yðar því í huga yðar
og bregðið aldrei trúnaði.
Kólossubréf 3 : 14
En íklæðist yfir allt þetta elskunni, sem er band algjörleikans.
8.
BÖRNIN-
Biðjum
Guð um að börnin fái að koma til Hans og að ENGINN varni þeim það. Biðjum Guð
að reisa börn þessa lands til að verða þjónar Hins hæðsta lifandi Guðs.
Markúsarguðspjall 10:14 Þegar Jesús sá það, sárnaði honum, og hann mælti við þá: "Leyfið
börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.
Sálmarnir 8:3 Af munni
barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar
gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.
9.
DÝRÐ GUÐS -
Við
játum út að Drottinn er heilagur og Hans er dýrðin og mátturinn og vegsemdin og
hátignin, yfir öllu og innan kirkjunnar. Biðjum Guð að opinbera dýrð sína í
líkama sínum á Íslandi að ótti Guðs mætti vera í hjörtum hinna trúuðu að við
heirðum nafnið Hans með öllu lífi okkar.
Fyrri Kroníkubók 29:11 Þín,
Drottinn, er tignin, mátturinn og dýrðin, vegsemdin og
hátignin, því að allt er þitt, á himni og jörðu. Þinn er konungdómurinn,
Drottinn, og sá, er gnæfir yfir alla sem höfðingi.
- 1
